Spaugstofan og sápuóperan "Við tjörnina"

Ég horfði á fyrsta skipti í Spaugstofuna á þessum vetri og verð ég að segja að ég skemmti mér konunglega yfir þessu.  Ég ætla ekki að tína til 6927 ástæður þess hvers vegna Spaugstofan var góð en hún fór vel í gegnum þessa sápuóperu sem var í síðustu viku í ráðhúsi Reykjavíkur. 

Eitt sem vekur furðu mína er hvernig Ólafur F kom úr helginni.  Í forsíðugrein í Mogganum var haft eftir Ólafi F. að veikindi hans séu hans persónuleg mál - OK gott mál.  Seinna í sömu grein biður hann um að fólk sýni sér skilning vegna veikinda hans.  Þetta er í einu og sömu greininni.  Til að toppa þetta þá er hann í opinskáu viðtali í 24 stundum um veikindi sín.  Hvernig væri að vera samkvæmur sjálfum sér. 

Sá maður sem kemur sterkastur út úr þessu valdabrölti Sjálfstæðisflokksins er Dagur B. Eggertsson fyrrum borgarstjóri í Reykjavík.  Hann hefur haldið sinni virðingu og talar yfirvegað um þessi mál.  Hann er að koma gríðarlega sterkur út á meðan Villi Þ. er í því að reyna að tortíma Sjálfstæðisflokknum í borginni.  Ég fagna svo samstöðu Tjarnarkvartettsins og vona að Samfylkingin verði í öflugri stjórnarandstöðu og ég veit að flokkurinn fer ekki að leggjast jafn lágt og Sjálfstæðisflokkurinn.

Ég vil að lokum fagna þeim mótmælum sem voru í ráðhúsinu í síðustu viku.  Nauðsynlegt að sýna ráðamönnum að þeir komist ekki upp með hvað sem er.  Ég hef heyrt í mörgum og séð marga skrifa um þessi "skrílslæti".  Loksins fóru Íslendingar og mótmæltu í stað þess að hver og einn kvartar í sínu horni og ekkert gerist.  Við eigum að vera mikið öflugri í okkar mótmælaaðgerðum og vona ég að þetta sé rétt aðeins byrjunin á þessu.  T.d. ef mjólkin mundi hækka í verði - mundum við hætta að versla mjólk í viku til að mótmæla þessu - Nei, Íslendingar láta allt yfir sig ganga.

Að lokum - Takið frá 8. mars.  Nánar síðar!


Er bæjarpólitíkin að standa sig?

Velti annað slagið fyrir mér - Af hverju er ekki meira um að vera á Akureyri heldur en raun ber vitni.  Hvar eru fyrirtækin þar sem vantar sérmenntað starfsfólk?  Af hverju nota fyrirtæki í Kauphöllinni sér það ekki og vera með höfuðstöðvar á Akureyri?

Ég held að undanfarin 12-16 ár hafa menn á Akureyri verið í frígírnum og vona eftir því að eitthvað gott gerist.  Þetta byrjaði þegar bæjarstjórnin seldi hlut Akureyrarbæjar í ÚA til SH og fékk í staðinn 80 störf flutt til Akureyrar (og held ég að sum störfin hafi verið talin tvisvar ef ekki þrisvar til að ná upp í 80).  ÍS aftur á móti bauð okkur það að reisa höfuðstöðvar sínar á Akureyri.  Kosturinn við það var að fá hálaunuð störf til bæjarins sem skilar sér svo í hærri skatttekjum o.s.frv.  En því miður fyrir Akureyri varð SH ofan á.

Svo virðist sem bæjarstjórnin sé að átta sig á þessu hlutleysi sínu og eru við það að setja í fyrsta gír með starfsemi aflþynnuverksmiðju á Krossanesi.  Síðan heyrir maður að Kjarnafæði sé svo að byggja risahúsnæði á Svalbarðseyri þar sem þeir fái ekki lóð á Akureyri.  Þeir hafi verið búnir að sækja eftir því að fá lóð í töluverðan tíma en svo virðist vera að starfsmenn bæjarins á Skipulagsdeildinni séu steinsofandi. 

Það skiptir máli fyrir bæjarfélag sem ætlar sér að verða mótvægisafl við Reykjavík að allir starfsmenn séu á tánum til að tryggja bestu þjónustuna.   Það er ekki nóg að auglýsa að hér sé best að búa heldur þurfa menn að eiga inni fyrir þeirri yfirlýsingu.


Ekki klikkar Möllerinn

Vaðlaheiðargöng strax sagði Kristján Möller fyrir síðustu kosningar.  Hann er núna búinn að vera í embætti í 8 mánuði og lítur út fyrir að byrjað verði nú fljótlega á þeim.  Vaðlaheiðargöng eru framar á framkvæmdaáætlun heldur en tvöföldun Suðurlandsbrautar og Sundabraut.

Sjá frétt á Vísi

Haltu áfram þessu góða verki sem þú ert að vinna Möller.


Skaupið er Super Bowl Íslands

Í Bandaríkjunum þá keppast stórfyrirtækin um að frumsýna auglýsingar í kringum Super Bowl.  Fyrirtæki borga duglega fyrir að koma sínum skilaboðum á framfæri á sem bestum tíma enda ná þeir flestum fyrir framan sjónvarpið á meðan leiknum stendur.

Það má því segja að litið sé á Skaupið sömu augum.  Kaupþing frumsýndi nýja auglýsingu með Randver og Cleese eins og frægt er, tók eftir nýrri auglýsingu frá TM og síðan má ekki gleyma auglýsingunni frá Remax sem allir biðu eftir.  Sú auglýsing var virkilega vel gerð.  Góð ímyndarauglýsing.  Remax hefur alltaf virkað á mig að þarna séu sölufulltrúar sem svífast einskis til þess eins að ná söluþóknuninni.  Auglýsingarnar sem þeir nota hafa verið þannig.  Stórar myndir af sölufulltrúum fyrirtækisins og skipta þeir ekki minna máli en húsin sem þeir eru að selja.  Við auglýsinguna í Skaupinu breytist þetta viðhorf mitt - ég hugsaði með mér, þeir vilja selja mér hús sem ég er virkilega ánægður með.  Þeir ættu því að breyta auglýsingataktík sinni strax í takt við þessa auglýsingu.  Auglýsa - ánægja þín skiptir okkur máli.  Leggja meiri áherslu á húsin og e.t.v. minni á sölumennina.  Ég held að þeir muni ekki nýta það tækifæri heldur einungis halda áfram uppteknum hætti og viðhorf mitt til þeirra verður eins og áður hefur verið. 

Það er nefnilega ekki nóg að auglýsa einu sinni gríðarlega ímynd og geta svo ekki staðið undir því eða klikka gjörsamlega á því að hafa auglýsingarnar í sama anda eftir þessu framtaki.


Gleðilegt ár öllsömul

Vil byrja á því að óska öllum gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnu ári.  Gamlársdagur gekk sinn vanagang.  Byrjaði morguninn kl. 6 á því að bera út Morgunblaðið en er nú búinn að bera út Morgunblaðið í 9 mánuði og líkar það vel enda með þægilegt hverfi og klukkutíma göngutúr á hverjum morgni áður en maður fer í vinnu kemur manni vel í gang.  Unnið í Dekkjahöllinni til 12 og er ég að vinna í markaðsmálum vegna 2008. 

Fórum heim og svo snæddur dýrindiskalkúnn hjá Tengdó.  Klikkaði hann ekki á eldamennskunni frekar en fyrri daginn.  Horfðum á skaupið hjá mömmu og pabba og var ég þokkalega ánægður með skaupið.  Góðir punktar þarna inná.  Það sem situr í manni er t.d. Ingibjörg Sólrún að ræða við Össur um mótmælendurna og segja hversu lítið þeir þurfa að gera svo að hún skrifi ekki undir en það vanti bara að þeir ati á hana aur og rispi bílinn svo að hún hætti við.  Góður!  Hundurinn Lúkas fékk svo sinn skerf - var alveg inneign fyrir því.

Eftir að hafa kveikt á blysum og horft á flugeldasýningar hjá öðrum þá var förinni heitið heim þar sem var spilað frameftir nóttu og komu þar valinkunnir snillingar.

Ég vil svo fagna tilskipun heilbrigðisráðherra um að fella niður komugjöld barna yngri en 18 ára á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum en það er alveg í takt við það sem Samfylkingin prédikaði fyrir kosningarnar s.l. vor.  Frábært alveg hreint.


Á ég að skila konfektkassanum?

Horfði á silfur Egils í dag og var skemmtilegt að sjá hversu margir töldu það að Samfylkingin komst til valda væri það besta sem hafði gerst á þessu ári.  Egill spurði hvort að þeir hefðu skilað vínflöskunni sem Landsbankinn hafði sent ráðherrum.   Ég fór því að velta fyrir mér hvort að ég ætti að skila konfektkassanum sem ég fékk sendan frá Toyota. 

Var hinsvegar í kvöld á Spilakvöldi Ungra Jafnaðarmanna á Akureyri.  Var að sjálfsögðu rætt aðeins um stjórnmál og svo spilað Friends spilið.  Ég þakka öllum þeim sem mættu í kvöld.  Þetta var gríðarlega gaman.


Margrét Lára - sannarlega Íþróttamaður ársins

Þegar ég sá listann í fréttunum í gær yfir topp 10 þá var fyrsta nafnið sem kom í kollinn Margrét Lára.  Sá svo í gærkveldi að hún hefði verið valin.  Vil óska henni innilega til hamingju með titilinn en hún er einstaklega vel að honum komin.  Hún stóð sig gríðarlega vel í Íslandsmótinu í sumar og ekki síður með landsliðinu.  Hún hefur verið að vinna í sérverkefnum hjá KSÍ í að efla áhuga stelpna á fótbolta.  Ég var einstaklega ánægður með valið - þarna hefðu fréttamenn heldur betur unnið heimavinnuna.

Þegar ég hlustaði svo á hádegisfréttirnar í dag þá var viðtal við Margréti Láru og þá talar hún hversu mikil fyrirmynd hún álitur sig og þær ráðleggingar sem hún gefur ungum stúlkum.  Þetta réttlæti valið enn frekar og sannar að hún er sannur íþróttamaður hvort sem er innan eða utan vallar.  Hvert lið væri hreykið af því að hafa slíka konu í sínu liði. 

Innilega til hamingju Margrét Lára - þú átt þetta sannarlega skilið 


Skiptir það máli

Skiptir það máli fyrir viðskiptavini hvernig fyrirtæki vinna úr kvörtunum?  Eru þau tilbúin að taka við kvörtunum og hvað gera þau við þessar kvartanir. 

Hér í því fyrirtæki sem ég vinn er ég að vinna í því að taka vel á móti kvörtunum.  Það er ekkert verra en fyrirtæki sem hafa zero tolerance gagnvart kvörtunum.  Kvartanir láta þig vita hvar þú þarft að standa þig betur og hvernig þú getur gert það.  Fyrirtæki eru misjafnlega í stakk búinn til að taka á móti kvörtunum.   Það á hver sem er að geta tekið á móti þeim - skrásett þær.  Það skiptir miklu máli.

Fyrirtæki taka misjafnlega góð í að taka á móti kvörtunum.  Ég lenti í því í Bretlandi að þurfa kvarta yfir járnbrautarferð sem ég fór í og það urðu seinkanir ofan á seinkanir sem næstum urðu þess valdandi að konan og börnin misstu af fluginu til Íslands.  Ég þurfti að senda bréf á ákveðið netfang ásamt afriti af lestarmiðunum.  Viku seinna fékk ég svo sárabætur, 14 punda inneign á næstu ferð.  Mér fannst gott hvernig fyrirtækið gekk frá málinu og hélt ég áfram í þessu tilviki að skipta við Central Trains enda þægilegt að taka bara eina lest frá Leicester og niður á Stansted.

Viðskiptavinir skipta líka miklu máli og þá sérstaklega að nafnið þeirra sé rétt.  Þegar við vorum í Bretlandi þá hétum við hjá Powergen - New customer.  Það var fyndið að fá bréf eftir að við skiptum yfir til British Gas.  Dear New Customer! We have been trying to reach you....  Ég viðurkenni það að það var gott að fá svona bréf en þá fékk maður það á tilfinninguna að maður skipti máli en sú tilfinning eyðilagðist um leið og maður sá New Customer.  Þetta er hinsvegar eitthvað sem íslenskum fyrirtækjum hefur alveg gleymst að taka upp.


Við erum einstök

Heyrði í fréttum í morgun að jólaverslun í Bandaríkjunum hefði verið afburðaléleg.  Bandaríkjamenn halda að sér höndum þar sem efnahagsástand er í óvissu vegna húsnæðislánanna og afskrifta bankanna vegna þessa.  Á sama tíma eru stýrivextir í hæstu hæðum hér á Íslandi, bankarnir græða aldrei sem fyrr á kaupgleði okkar.  Ég bjóst við því að við Íslendingar værum nú með eitthvað vit í kollinum og mundum aðeins að minnka við okkur á þessu fylleríi sem við erum í.  Aldeilis ekki - heldur jókst kortanotkun Íslendinga um 20% núna í desember.

Hefðum við haldið að okkur höndum ef Davíð Oddsson hefði hækkað stýrivextina ennfrekar í síðustu viku?  Ég held ekki.  Íslendingar haga sér ekki í takt við hagfræðikenningar - við erum undantekningin sem sannar regluna.


RÚV af auglýsingamarkaði

Birti hér grein eftir mig sem birtist af politik.is og uja.is í dag.

 

Ég vil byrja á því að fagna samningi Ríkisútvarpsins ohf. og Björgúlfs Guðmundssonar um að tvöfalda framlag til kaupa á leiknu íslensku efni.  Mér finnst frábært að menn skuli sjá sér hag í því að styrkja eins mikilvægt málefni og íslensk leiklist er.  Það sem mér hinsvegar gremst er að með þessum samningi er RÚV að styrkja stöðu sína á auglýsingamarkaði og þar um leið að styrkja sig í samkeppni við fyrirtæki á almennum markaði.  RÚV getur því boðið upp á meiri íslenska þáttagerð sem eftirsóknarvert er að auglýsa hjá.

Ég er hissa á því að hlutafélag í eigu íslenska ríkisins sé að styrkja sig í baráttunni á íslenskum auglýsingamarkaði með þessum hætti og gerir því öðrum fyrirtækjum erfiðara um vik að selja auglýsingar og í raun breyta landslaginu á auglýsingamarkaðnum.  Hvaða sjónvarpsstöð væri ekki tilbúin að fá 2-300 milljónir inn á borð til sín til að kaupa leikið efni og um leið styrkja stöðu sína á auglýsingamarkaði?

Ég vil því sjá RÚV hverfa á brott af auglýsingamarkaði þar sem fyrirtæki í opinberri eigu á ekki að vera í samkeppni við önnur fyrirtæki.  Á árinu 2005 var RÚV að taka inn 970.501.090 kr í auglýsingar og kostun samkvæmt ársreikningi stofnuninnar en hann er aðgengilegur á vefnum ruv.is.  Brotthvarf RÚV getur aukið samkeppni á markaðnum og getur gert öðrum kleift að komast inn á þennan markað þar sem aðgangshindranir á markaðinn mundu þá minnka.   Samtök auglýsenda hafa aftur á móti verið á móti brotthvarfi RÚV af auglýsingamarkaði þar sem það gæti haft í för með sér hækkun auglýsingaverðs.  Það getur vel verið svo en þess skal þó alltaf hafa í huga að auglýsandinn hefur val á að auglýsa.  Séu menn ósáttir við verðið þá sleppa menn því að auglýsa eða auglýsa frekar annars staðar í öðrum miðlum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Jói Jóns

Höfundur

Jóhann Jónsson
Jóhann Jónsson

starfa sem verkefnastjóri hjá Dekkjahöllinni.  Er Formaður Sölku, Ungra jafnaðarmanna á Akureyri.  Þórsari og umfram allt Akureyringur. 

Sendið mér póst á joijons@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • jj4
  • undirskrift
  • ...joi_arsenal
  • ...7203706_web
  • ...p7203706

Nota bene

Veðrið

Veðrið á Akureyri
Click for Akureyri, Iceland Forecast
Veðrið í Leicester Click for Cottesmore, United Kingdom Forecast

Vinir og ættingjar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 16659

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband