Skaupið er Super Bowl Íslands

Í Bandaríkjunum þá keppast stórfyrirtækin um að frumsýna auglýsingar í kringum Super Bowl.  Fyrirtæki borga duglega fyrir að koma sínum skilaboðum á framfæri á sem bestum tíma enda ná þeir flestum fyrir framan sjónvarpið á meðan leiknum stendur.

Það má því segja að litið sé á Skaupið sömu augum.  Kaupþing frumsýndi nýja auglýsingu með Randver og Cleese eins og frægt er, tók eftir nýrri auglýsingu frá TM og síðan má ekki gleyma auglýsingunni frá Remax sem allir biðu eftir.  Sú auglýsing var virkilega vel gerð.  Góð ímyndarauglýsing.  Remax hefur alltaf virkað á mig að þarna séu sölufulltrúar sem svífast einskis til þess eins að ná söluþóknuninni.  Auglýsingarnar sem þeir nota hafa verið þannig.  Stórar myndir af sölufulltrúum fyrirtækisins og skipta þeir ekki minna máli en húsin sem þeir eru að selja.  Við auglýsinguna í Skaupinu breytist þetta viðhorf mitt - ég hugsaði með mér, þeir vilja selja mér hús sem ég er virkilega ánægður með.  Þeir ættu því að breyta auglýsingataktík sinni strax í takt við þessa auglýsingu.  Auglýsa - ánægja þín skiptir okkur máli.  Leggja meiri áherslu á húsin og e.t.v. minni á sölumennina.  Ég held að þeir muni ekki nýta það tækifæri heldur einungis halda áfram uppteknum hætti og viðhorf mitt til þeirra verður eins og áður hefur verið. 

Það er nefnilega ekki nóg að auglýsa einu sinni gríðarlega ímynd og geta svo ekki staðið undir því eða klikka gjörsamlega á því að hafa auglýsingarnar í sama anda eftir þessu framtaki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tók nú eftir annarri auglýsingu fyrir skaupið; nefnilega frá hljómsveitinni Bermúda. Þarna var Glitnir, Actavis, Kaupþing, Atorka... og svo hljómsveitin BERMÚDA! Halló! Sá svo auglýsinguna þeirra á kvikmynd.is... fékk mig algjörlega til að sussa og kalla á ættingjana úr kokteilabrasi í eldhúsinu :). Ég tek ofan fyrir þeim "minni" sem henda sér í svona dýran auglýsingaslag. Svo var auglýsingin þeirra enginn eftirbátur stóru fyrirtækjana, gæðalega séð... allavegana ekki þarna á gamlárskvöld í hita leiksins.

Dax (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 04:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jói Jóns

Höfundur

Jóhann Jónsson
Jóhann Jónsson

starfa sem verkefnastjóri hjá Dekkjahöllinni.  Er Formaður Sölku, Ungra jafnaðarmanna á Akureyri.  Þórsari og umfram allt Akureyringur. 

Sendið mér póst á joijons@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • jj4
  • undirskrift
  • ...joi_arsenal
  • ...7203706_web
  • ...p7203706

Nota bene

Veðrið

Veðrið á Akureyri
Click for Akureyri, Iceland Forecast
Veðrið í Leicester Click for Cottesmore, United Kingdom Forecast

Vinir og ættingjar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 16578

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband