Við erum einstök

Heyrði í fréttum í morgun að jólaverslun í Bandaríkjunum hefði verið afburðaléleg.  Bandaríkjamenn halda að sér höndum þar sem efnahagsástand er í óvissu vegna húsnæðislánanna og afskrifta bankanna vegna þessa.  Á sama tíma eru stýrivextir í hæstu hæðum hér á Íslandi, bankarnir græða aldrei sem fyrr á kaupgleði okkar.  Ég bjóst við því að við Íslendingar værum nú með eitthvað vit í kollinum og mundum aðeins að minnka við okkur á þessu fylleríi sem við erum í.  Aldeilis ekki - heldur jókst kortanotkun Íslendinga um 20% núna í desember.

Hefðum við haldið að okkur höndum ef Davíð Oddsson hefði hækkað stýrivextina ennfrekar í síðustu viku?  Ég held ekki.  Íslendingar haga sér ekki í takt við hagfræðikenningar - við erum undantekningin sem sannar regluna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Jóhannesson

Við stefnum á hausinn - og þegar við förum á hausinn - þá gerum við það með stæl og með svo miklum blóma að það verður trúlega aldrei, þá meina ég aldrei toppað.

Páll Jóhannesson, 27.12.2007 kl. 16:19

2 identicon

Þó við höfum aldrei eitt eins miklu um þessi jól þá er það ekki merki um að við fylgjum ekki heims hagkerfunum, þar sem fjármálakreppa og kjararýrnun á sér upphaf í usa.  Og mun það hafa áhrif um allan heim og líka hér á Íslandi.  Málið er að helmingur þjóðarinnar hefur fengið áukinn kaupmátt, hinn ekki. Helmingurinn sem hefur fengið aukinn kaupmátt hefur haldið upp á það með gælsilegu jólahaldi (Í formi lántöku að einhverju leyti), 1\4 sem ekki hefur fengið raunhækkun en vill ekki láta stitt eftir liggja og sekkur ennþá lengra í skuldafenið fyrir hver jól til að lýta vel út fyrir ættingjum, og loks er það 1\4 sem er á botninum sem getur ekki tekið þátt í þessari veislu og þurfa jafnvel aðstoð til að geta haldi sómasamleg jól.  Almenningur fylgist ekki með fjármálakreppu og hefur í raun ekki áhuga á slíkum fréttum.  En það er bankakerfið sem heldur svallinu áfram með því að moka út peningum í formi láns til óupplýsts almúgans........ En það mun stöðvast að einhverju leyti þegar fjármálakreppan verður ekki bara fjármálakreppa heldur.......

gfs (IP-tala skráð) 30.12.2007 kl. 14:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jói Jóns

Höfundur

Jóhann Jónsson
Jóhann Jónsson

starfa sem verkefnastjóri hjá Dekkjahöllinni.  Er Formaður Sölku, Ungra jafnaðarmanna á Akureyri.  Þórsari og umfram allt Akureyringur. 

Sendið mér póst á joijons@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • jj4
  • undirskrift
  • ...joi_arsenal
  • ...7203706_web
  • ...p7203706

Nota bene

Veðrið

Veðrið á Akureyri
Click for Akureyri, Iceland Forecast
Veðrið í Leicester Click for Cottesmore, United Kingdom Forecast

Vinir og ættingjar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband