29.12.2007 | 22:49
Margrét Lára - sannarlega Íþróttamaður ársins
Þegar ég sá listann í fréttunum í gær yfir topp 10 þá var fyrsta nafnið sem kom í kollinn Margrét Lára. Sá svo í gærkveldi að hún hefði verið valin. Vil óska henni innilega til hamingju með titilinn en hún er einstaklega vel að honum komin. Hún stóð sig gríðarlega vel í Íslandsmótinu í sumar og ekki síður með landsliðinu. Hún hefur verið að vinna í sérverkefnum hjá KSÍ í að efla áhuga stelpna á fótbolta. Ég var einstaklega ánægður með valið - þarna hefðu fréttamenn heldur betur unnið heimavinnuna.
Þegar ég hlustaði svo á hádegisfréttirnar í dag þá var viðtal við Margréti Láru og þá talar hún hversu mikil fyrirmynd hún álitur sig og þær ráðleggingar sem hún gefur ungum stúlkum. Þetta réttlæti valið enn frekar og sannar að hún er sannur íþróttamaður hvort sem er innan eða utan vallar. Hvert lið væri hreykið af því að hafa slíka konu í sínu liði.
Innilega til hamingju Margrét Lára - þú átt þetta sannarlega skilið
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.