13.1.2009 | 19:23
Að vera vinur vina sinna
Það er alltaf gott að gefa vinum sínum heilræði og vera hugsandi um velferð þeirra. Ingibjörg hafði með þessum orðum aðeins verið að gefa vinkonu sinni góð ráð er varðandi þennan fund þar sem henni er trúlegt annt um velferð vina sinna.
Að "vinkonan" skuli svo hafa stillt þessu svona upp á þessum fundi segir meira um Sigurbjörgu og hug hennar til Ingibjargar.
Ég treysti því alveg að Ingibjörg hafði ekkert vafasamt í huga með þessum orðum. Þannig vinnur hún ekki.
Ingibjörg Sólrún kom boðum til Sigurbjargar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Nei einmitt.
Þetta sagði hún nú einu sinni er hana langaði að verða borgarstjóri.
Já ég fullyrði algerlega að ég er ekki að fara í þingframboð að ári. Það er alveg ljóst.
Við vitum öll hvernig það fór.
Halla Rut , 13.1.2009 kl. 19:51
málflutningur "höllu rut" er dæmi um sorglegan einstakling sem leitar að hverju sem er til að koma höggi á einhvern sem henni mislíkar. Sama hversu fjarstæðukennt það er.
hs (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 20:31
Fjarstæðukennt ... ég hélt að þessir tveir atburðir er ég nefni hér séu staðreynd.
Halla Rut , 13.1.2009 kl. 20:54
Jú það er hægt að draga ýmislegt fram til að gera persónu vafasama og væri trúlega hægt að taka hvern einasta stjórnmálamann á Íslandi og gera hann vafasaman með einhverju gömlu commenti. Ingibjörg Sólrún hefur unnið sín störf af miklum heilindum og tel ég Íslandi það til heilla að hún skuli vera við stjórnvölin núna. Ég persónulega hefði viljað sjá Samfylkinguna vera öflugra aðhald gagnvart Sjálfstæðisflokknum og verja velferðarkerfið en þar hafa hinsvegar verið gerðar margar breytingar til góðs sem Jóhanna Sigurðardóttir hefur staðið á bakvið.
Næstu vikur verða vonandi tími breytinga í ríkisstjórninni.
Jóhann Jónsson, 14.1.2009 kl. 08:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.