15.10.2008 | 21:34
Mikilvægt að horfa fram á veginn
Það er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að við lokum okkur ekki af í alþjóðasamfélaginu heldur höldum ótrauð áfram að gera okkur að ábyrgri þjóð sem er tilbúin að taka þátt í að móta samfélög heimsins og takast á við vandann sem við okkur blasir. Margir eru eflaust ósáttir við öryggisráðið og skilja ekki hvað við erum að gera með að eyða pening í þetta. Ég tel þetta ekki eyðslu heldur meira sem fjárfestingu í að koma Íslandi á kortið. Trúlega hefur þessi djúpa efnahagslægð áhrif á álit þjóða á Íslandi en ég spyr á móti - Hvaða þjóð er ekki að lenda í vandræðum í efnahagsmálum þessa dagana.
Ég vona svo sannarlega að við komumst inn í öryggisráðið því þá held ég að aðrir þjóðir komi óvænt inn í umræðuna um að lána Seðlabankanum því menn séu hræddir við þá stöðu sem Rússar gætu verið að koma sér í með því að lána Íslandi. Við þurfum að efla tengsl okkar við þjóðir heimsins og er öryggisráðið einn liður í þeirri baráttu.
Áfram Ísland!
Hörð barátta um sæti í öryggisráðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.