26.4.2008 | 23:57
Magnað kvöld að baki
Það er alltaf skemmtilegt að gera eitthvað nýtt. Í kvöld var ég veislustjóri á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Þórs. Þetta er í fyrsta skipti sem ég er veislustjóri. Viku áður hafði ég verið kynnir á tónleikum sem knattspyrnudeildin var með vegna fimmtíu ára afmælis deildarinnar. Veturinn í körfunni er búinn að vera frábær. Við erum búnir að standa okkur gríðarlega vel og ljóst að uppbygging á félaginu gengur vel. Félagið hefur verið í gríðarlegri sókn undanfarið og vona ég að knattspyrnan standi sig einnig vel í sumar og komist í deild þeirra bestu.
Það hefur verið gríðarlega mikið að gera undanförnu. Það hafa allir verið að skipta yfir á sumardekkin og höfum við í Dekkjahöllinni ekki farið varhluta að því. Elsta dóttir okkar missti svo fyrstu tönnina sína um daginn og er hún alveg að rífna úr monti. Það er ekki spurning - maður verður að vera duglegri að blogga. Konan er gjörsamlega að jarða mig í þessu. Það horfir til betri vegar í þessu
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stóðst þig ágætlega í hlutverki veislustjóra. Takk fyrir kvöldið.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 27.4.2008 kl. 17:04
já elskan, þú varst bara fínn í þessu hlutverki, bæði á lokahófinu & á tónleikunum Þú mættir alveg koma með fleiri blogg svo þú lítir betur út í þessari keppni þinni um bloggfærslur Love you
Dagbjört Pálsdóttir, 27.4.2008 kl. 19:13
Þú varst bara bísna andskoti góður... takk fyrir
Páll Jóhannesson, 27.4.2008 kl. 21:42
hehe - greynilega ennþá smá skjálfti hjá þér því þú skrifar:
"Þetta er í fyrsta skipti sem ég er veislustjóri. Viku áður hafði ég verið kynnir á tónleikum sem knattspyrnudeildin var með vegna fimmtíu ára afmælis deildarinnar."
Annars varstu bara fjári flottur í gærkveldi
Rúnar Haukur Ingimarsson, 27.4.2008 kl. 22:30
Þakka commentin...
Rúnar að sjálfsögðu var þetta körfuknattleiksdeildin sem var með þessa tónleika. Ég vil enn og aftur þakka fyrir skemmtilegt kvöld. Ég og konan skemmtu okkur vel.
Jóhann Jónsson, 27.4.2008 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.