16.6.2009 | 23:36
Takk Ásta!
Loksins er kominn forseti Alþingis með bein í nefinu. Oft hefur maður horft á Alþingi þar sem fólk hefur kvatt sér til hljóðs undir fundarstjórn forseta og oft skilur maður ekki af hverju viðkomandi gerði það. Sigmundur byrjar að óska eftir því að forsætisráðherra verði viðstaddur svo að hægt sé að spyrja hana spurninga um ESB aðildarumsókn Íslands og svo fer hann að lesa upp úr Fréttablaðinu. Hvað hefur þetta að gera með fundarstjórn forseta? Af hverju tekur hann ekki til máls undir störf þingsins með þetta mál? Ef Sigmundur myndi eyða e.t.v. minni tíma í að lesa blöðin og skoða dagskrá Alþingis þá hefði hann séð að forsætisráðherra tekur þátt í óundirbúnum fyrirspurnartíma 18. júní kl. 13.30.
Ég vil að Ásta Ragnheiður haldi þessari línu áfram í starfi sínu og fagna ég þessu hjá henni. Haltu áfram svona Ásta!
Óásættanleg framkoma forsetans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.