28.2.2008 | 22:09
og áfram höldum við, nú með Maríu
Vil óska Maríu innilega til hamingju með leikhússtjórastöðuna. Gaman að fá svona margreynda konu í starfið.
Það verður erfitt að fylgja eftir því einstaklega góða starfi sem Magnús Geir hefur skilað hér við leikhúsið og ljóst að með Maríu verður fylgst. Hver sýning á fætur annari er að setja met og verð ég að segja að ég er ekki hissa. Mikill metnaður hefur verið settur í að fá fólk á öllum aldri í leikhúsið og efa ég að aldrei fyrr hafa fleiri áskriftarkort verið seld á Akureyri eins og einmitt nú. Ég reikna með að María haldi áfram þeirri vinnu sem Magnús Geir hefur skilað af sér. Ef leikhúsið verður eins vel rekið eins og sýningin hennar Maríu, Fló á skinni, er vel heppnuð þá kvíði ég engu.
María leikhússtjóri á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:40 | Facebook
Um bloggið
Jói Jóns
Myndaalbúm
Vinir og ættingjar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tek undir árnaðaróskir til Maríu og er fullviss að henni takist að fylgja eftir og stýra áfram því frábæra starfi sen hefur verið unnið hjá Leikfélagi Akureyrar undanfarin ár. - Þakka henni jafnframt fyrir frábæra uppsetningu "Flóarinnar". Það var ómetanleg skemmtun að sjá þá sýningu.
Haraldur Bjarnason, 28.2.2008 kl. 23:23
Fló á skinni er bara snilldarinnar leikrit & vona að Maríu takist jafn vel upp með starf sitt sem leikhússtjóri, ja eða stýra
Hlakka svo til þegar þú býður mér næst í leikhús elskan
Dagbjört Pálsdóttir, 29.2.2008 kl. 01:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.